Fenra
2 mín. lestur
2 mín. lestur
Hlaða upp vottorði um menntun og hæfni
Svona vistar þú starfsleyfi, námskeiðsvottorð eða annað hæfniskjal á þínum Fenra-aðgangi.
Þú þarft að vera skráð eða skráður inn í Fenra. Vottorðið vistast á þínum aðgangi, óháð því hvaða fyrirtæki eða verkefni þú tilheyrir.
1. Opnaðu Aðgangurinn minn
Veldu notandamyndina þína og síðan Aðgangurinn minn.
2. Finndu vottorðahlutann
Farðu niður í Vottorð um menntun og hæfni og veldu Hlaða upp vottorðum.
3. Veldu skrá
Veldu PDF- eða skjalaskrána sem þú vilt vista. Þegar skráarheitið birtist í glugganum skaltu velja Hlaða upp.
4. Athugaðu að vottorðið sé komið inn
Nýja vottorðið birtist sem skjalaspjald í sama hluta. Þar getur þú opnað það, hlaðið því niður, breytt heitinu eða eytt því.



