Allar leiðbeiningar
Fenra

3 mín. lestur

Nota möppusniðmát í Fenra

Bættu tilbúnum möppustrúktúr, til dæmis Gæðakerfi byggingarstjóra, við skjöl verks.

Þú þarft að geta hlaðið upp og breytt skjölum í verkinu. Möppusniðmát býr til tilbúinn möppustrúktúr en eyðir ekki skjölum eða möppum sem eru þegar til staðar.

Nota sniðmát þegar þú stofnar verk

Í glugganum Nýtt verk getur þú valið eitt eða fleiri sniðmát undir Möppusniðmát (valfrjálst). Möppurnar verða þá búnar til um leið og þú vistar verkið.

Nota sniðmát í verki sem er þegar til

1. Opnaðu skjöl verksins

Opnaðu verkið, veldu Skjöl og síðan Nota sniðmát.

Skjalasíða verks með aðgerðinni Nota sniðmátOpna mynd í fullri stærð ↗

2. Veldu möppusniðmát

Opnaðu Veldu sniðmát og veldu Gæðakerfi byggingarstjóra. Ef þú starfar í öðru faghlutverki skaltu velja viðeigandi gæðakerfissniðmát fyrir það hlutverk.

Valgluggi með möppusniðmátinu Gæðakerfi byggingarstjóra

3. Búðu til möppurnar

Veldu Nota. Fenra býr til möppurnar á þeim stað sem þú ert stödd eða staddur í skjalatrénu.

Gæðakerfismöppur komnar inn í skjöl gerviverksOpna mynd í fullri stærð ↗

Farðu yfir möppurnar og vistaðu gögn á réttum stað jafnóðum. Skjalaskoðun metur uppbyggingu kerfisins en virkniskoðun metur síðar hvernig það er notað og hvort gögn séu rekjanleg.