Allar greinar
Pétur Már Sigurðsson

5 mín. lestur

4 skref til að nota gervigreind við tilboðsgerð

Notaðu gervigreind til að finna kröfur, bera saman útboðsgögn og grípa það sem gleymdist að verðleggja áður en tilboði er skilað.

Þessi frétt var upphaflega skrifuð fyrir Byggingar.is og birt þar 3. september 2026

Ég hef kennt yfir 3.000 manns að nota gervigreind í raunverulegum verkefnum og hef komist að einu áhugaverðu: Flestir hugsa um gervigreind eins og árið sé 2040 og hún geti gert alla vinnuna okkar frá A til Ö.

Undanfarið hef ég, í samstarfi við Byggingar.is, meðal annars verið að skoða hvernig hægt er að nýta gervigreind á raunhæfan hátt við tilboðsgerð og yfirferð útboðsgagna í íslenskum byggingariðnaði.

Þegar ég ræði þetta við byggingarverktaka kemur oft upp sama spurningin:

Getur gervigreindin bara lesið teikningarnar, reiknað magnið og sagt mér hvað ég á að bjóða í verkið?

Ég myndi ekki treysta henni fyrir því.

Það er einfaldlega of stór biti fyrir gervigreindina að kyngja í einu.

Gervigreind getur verið mjög nytsamleg við tilboðsgerð en ekki til þess að giska á hvað verkið kostar, heldur til þess að minnka líkurnar á að þú gleymir einhverju sem síðar kostar þig peninga.

1. Byrjaðu á að finna allt sem skuldbindur þig

Í einu útboði geta verið verklýsingar, teikningar, magnskrár, útboðsskilmálar, fundargerðir, viðaukar og tugir eða hundruðir blaðsíðna af fylgigögnum.

Einhvers staðar á blaðsíðu 46 getur verið ein setning sem kostar þig milljón ef þú tekur ekki eftir henni.

Þarna getur gervigreind verið mjög öflug.

Settu gögnin inn í gervigreind eins og ChatGPT eða Claude og láttu hana útbúa samræmdan kröfulista.

Biddu hana til dæmis um að svara:

  • Hvað þarf verktaki að framkvæma?
  • Hvað þarf verktaki að útvega?
  • Hvaða prófanir þarf að framkvæma?
  • Hvaða gögnum þarf að skila?
  • Hvaða hæfiskröfur og tímasetningar gilda?
  • Hvar í útboðsgögnunum kemur hver krafa fram?
  • Er misræmi á milli verklýsingar, teikninga, magnskrár eða annarra gagna?

Markmiðið er að nota gervigreindina sem annað par af augum yfir útboðsgögnin.

Skjáskot úr ChatGPT sem bendir á misræmi milli verklýsingar og teikningaOpna mynd í fullri stærð ↗

Skjáskot úr ChatGPT

2. Láttu hana bera gögnin saman

Hér tel ég að gervigreind geti skapað mikil verðmæti.

Útboðsgögn eru ekki alltaf fullkomlega samræmd.

Magnskrá getur sagt eitt, verklýsing annað og teikningarnar eitthvað þriðja.

Þú getur látið gervigreindina bera gögnin saman og spurt:

  • Eru verkþættir í verklýsingu sem ekki koma fram í magnskrá?
  • Eru magntölur eða lýsingar sem virðast ekki samræmast teikningum?
  • Eru óljós skil milli verkþátta?
  • Eru kröfur sem gætu leitt til aukakostnaðar?
  • Eru atriði sem ætti að senda fyrirspurn um áður en tilboði er skilað?

Svona getum við gripið villur áður en þær verða vesen. Þetta er eitthvað sem hönnuðir geta líka nýtt sér áður en þeir gefa hönnunargögnin út.

3. Notaðu gervigreindina til að finna upplýsingar í gögnunum

Þegar þú byrjar að verðleggja einstaka verkþætti getur verið mjög gagnlegt að geta spurt beint út í gögnin.

Ef útboðsgögnin eru þegar komin inn í spjallið geturðu til dæmis spurt:

  • Hvað er gert ráð fyrir mörgum gluggum?
  • Hversu djúpur á grunnurinn að vera?
  • Hvaða kröfur eru gerðar um þennan verkþátt?
  • Hvaða teikningar fjalla um hann?
  • Er sömu framkvæmd lýst með mismunandi hætti í verklýsingu og magnskrá?
  • Er einhver krafa í útboðsskilmálum sem hefur áhrif á kostnað við þennan verkþátt?

Í stað þess að leita aftur og aftur í hundruðum blaðsíðna geturðu notað hana til að hjálpa þér að finna upplýsingarnar.

En hér þarf að gera mikilvægan greinarmun.

Ef þú spyrð:

„Hvað tekur marga daga að framkvæma þetta verk með fimm starfsmönnum?“

er gervigreindin ekki lengur eingöngu að finna staðreynd í gögnunum. Hún er farin að áætla út frá forsendum.

Því þarf alltaf að greina á milli þess þegar gervigreindin er að sækja upplýsingar úr útboðsgögnum og þegar hún er að reikna, túlka eða áætla.

Svörin þarf alltaf að yfirfara.

Skjáskot úr ChatGPT sem áætlar vinnutíma við lagnavinnu út frá fjölda starfsmannaOpna mynd í fullri stærð ↗

Skjáskot úr ChatGPT

4. Finndu það sem þú gleymdir að verðleggja

Þegar tilboðið er orðið tilbúið myndi ég gera eina yfirferð í viðbót.

Opnaðu nýtt spjall. Gervigreindin mun þá ekki pæla í því sem hafði komið fram áður og pæla meira í heildarmyndinni.

Gefðu gervigreindinni útboðsgögnin og tilboðið þitt og segðu:

„Reyndu að finna allt sem ég gæti hafa gleymt að verðleggja. Finndu einnig misræmi, óljósar forsendur og atriði í útboðsgögnunum sem gætu skapað kostnað eða áhættu.“

Ekki biðja hana um að staðfesta að þú hafir rétt fyrir þér. Fáðu hana frekar til að reyna að sanna að þú hafir rangt fyrir þér.

Láttu hana meðal annars leita að:

  • kröfum sem virðast ekki hafa verið verðlagðar,
  • misræmi milli útboðsgagna og tilboðs,
  • óljósum forsendum,
  • verkþáttum sem mögulega vantar,
  • kostnaðaráhættu,
  • atriðum sem ætti að senda fyrirspurn um,
  • atriðum sem rétt gæti verið að undanskilja eða taka sérstaklega fram í tilboðinu.

Varaðu þig á teikningunum

Gervigreind er enn að læra að lesa byggingarteikningar.

Hún getur gert það að ákveðnu marki og tæknin batnar hratt, en hún er langt frá því að vera fullkomin.

Ég myndi því ekki hlaða inn flókinni lagnateikningu og spyrja:

„Hvað kostar að framkvæma alla pípulagningavinnuna í þessu verki?“

og treysta síðan svarinu án frekari skoðunar.

Gervigreind er mjög góð í texta. Hún er góð í að flokka upplýsingar, bera saman gögn og finna samhengi í miklu magni upplýsinga.

Lestur flókinna byggingarteikninga er erfiðara verkefni.

Það þýðir samt ekki að teikningar séu gagnslausar fyrir gervigreind. Hún getur hjálpað til við að finna atriði, bera teikningar saman við textagögn og benda á mögulegt ósamræmi. En fagleg yfirferð þarf enn að vera í höndum þess sem ber ábyrgð á tilboðinu.

Markmiðið er ekki að losna við manninn

Síðustu vikur höfum við hjá Fenra og Byggingar.is verið að skoða þessa nálgun með eina grundvallarspurningu að leiðarljósi:

Hvar getur gervigreind minnkað áhættu við raunverulega tilboðsgerð í byggingariðnaði?

Markmiðið er að skila tilboði þar sem minni líkur eru á að þú hafir:

  • misst af kröfu,
  • gleymt verkþætti,
  • horft fram hjá misræmi,
  • byggt verð á rangri forsendu,
  • eða tekið á þig áhættu sem þú áttaðir þig ekki á.

Ef gervigreind getur hjálpað verktaka að finna eitt slíkt atriði áður en tilboði er skilað getur verðmætið orðið mun meira en tíminn sem sparast við sjálfa tilboðsgerðina.

Þarna tel ég að eitt skýrasta notkunarsvið gervigreindar í byggingariðnaði liggi í dag.