Allar greinar
Pétur Már Sigurðsson

2 mín. lestur

Fenra og Grokbot

Ég lét GrokBot taka saman stöðuna í Fenra og bað það svo um vikulegt yfirlit. Hér geturðu líka sótt 15 hugmyndir til að prófa sjálfur.

Ég lét GrokBot lesa verkefnin mín í Fenra og segja mér hvað hefði gerst. Það kom til baka með samantekt um niðurrif á gömlum skúr við Dúfnahóla 10. Þetta voru demóverkefni sem ég hafði sett inn, en upplýsingarnar komu úr Fenra.

Svo bað ég það um að gera þetta á hverjum föstudegi. Og velja starfsmann vikunnar. Það síðasta var nú bara að gamni.

Sækja PDF: Fenra + GrokBot — 15 hagnýtar hugmyndir

Frá spurningu í vikulega samantekt

Þegar GrokBot er tengt við Fenra geturðu beðið það um að skoða verkefni og dagsskýrslur í stað þess að taka upplýsingarnar saman sjálfur. Þú segir hvaða verk þú vilt skoða og hvað þú vilt vita.

Í myndbandinu byrja ég á að fá samantekt úr demógögnunum. Næsta skref er að biðja um reglulega eftirfylgni:

Á hverjum föstudegi gefðu mér samantekt vikunnar og veldu fyrir mig starfsmann vikunnar.

Vikuyfirlitið er gagnlegi hlutinn. Starfsmaður vikunnar er létta viðbótin — skráning í kerfi segir auðvitað ekki alla söguna um vinnu fólks.

Hvað myndir þú láta GrokBot sjá um?

Í PDF-skjalinu eru 15 hugmyndir með fyrirmælum sem þú getur prófað. Þar er meðal annars hægt að finna leiðir til að sækja kvittun, fylgja eftir málum, fá morgunyfirlit úr Fenra og breyta glósum af verkstað í verkefnatillögur.

Ein hugmyndin er að bera verksamning saman við verkefni og dagsskýrslur til að finna möguleg aukaverk. GrokBot finnur atriðin og gögnin; þú ferð yfir niðurstöðuna.

Veldu eitt sem þú ert alltaf að fresta eða gleyma að fylgja eftir. Það er ágætur staður til að byrja.

Sækja hugmyndirnar 15 á PDF

Viltu fleiri svona dæmi um Fenra og gervigreind í daglegri vinnu? Skráðu þig á póstlistann hér fyrir neðan.