Allar leiðbeiningar
Fenra

2 mín. lestur

Fylla út fyrirtækjaupplýsingar í Fenra

Skráðu upplýsingarnar sem birtast í gæðahandbók fyrirtækisins og fylgigögnum þess.

Þú þarft að vera skráð eða skráður inn og geta breytt upplýsingum fyrirtækisins. Upplýsingarnar eru notaðar í gæðahandbók og öðrum gæðakerfisgögnum.

1. Opnaðu stillingar fyrirtækisins

Veldu fyrirtækið í Fenra og opnaðu Stillingar. Efst á síðunni er hlutinn Upplýsingar um fyrirtækið.

Upplýsingar um fyrirtækið áður en allir reitir hafa verið fylltir útOpna mynd í fullri stærð ↗

2. Fylltu út reitina

Skráðu Heiti fyrirtækis, Kennitölu, Heimilisfang, Póstnúmer, Stað, Síma, Netfang og Vefsíðu eftir því sem við á.

Hver reitur vistast þegar þú ferð úr honum. Bíddu eftir staðfestingunni Uppfært áður en þú lokar síðunni eða heldur áfram í næsta verkhluta.

Útfylltar fyrirtækjaupplýsingar með gervigögnumOpna mynd í fullri stærð ↗

3. Yfirfarðu upplýsingarnar í gæðahandbókinni

Opnaðu Gæðahandbók og staðfestu að heiti, kennitala og samskiptaupplýsingar séu réttar áður en þú sækir PDF-skjalið.

Sjá leiðbeiningar um að sækja gæðahandbók sem PDF.