Allar leiðbeiningar
Fenra

2 mín. lestur

Sækja gæðahandbók sem PDF

Yfirfarðu stafrænu gæðahandbókina og sæktu PDF-skjalið fyrir skjalaskoðun.

Þú þarft að vera skráð eða skráður inn og hafa heimild til að skoða gæðahandbók fyrirtækisins.

1. Opnaðu gæðahandbókina

Veldu fyrirtækið og opnaðu Gæðahandbók. Yfirfarðu sérstaklega Upplýsingar um fyrirtækið og að gæðakerfið vísi í rétt verklag og gögn.

Ef fyrirtækjaupplýsingar vantar skaltu ljúka við þær áður en þú sækir skjalið.

Sjá leiðbeiningar um fyrirtækjaupplýsingar.

2. Sæktu PDF-skjalið

Veldu Gæðahandbók sem PDF efst á síðunni. Fenra útbýr skjalið og vafrinn sækir það í tækið þitt.

Gæðahandbók fyrirtækisins með aðgerðinni Gæðahandbók sem PDFOpna mynd í fullri stærð ↗

Opnaðu PDF-skjalið og staðfestu að heiti og kennitala fyrirtækisins séu rétt. Vistaðu skjalið þar sem þú finnur það auðveldlega þegar skoðunarstofan óskar eftir því.

Fenra vottorð er annað skjal sem staðfestir virkan aðgang fyrirtækisins að Fenra. Það kemur ekki í stað gæðahandbókarinnar.