Allar leiðbeiningar
Fenra

2 mín. lestur

Stofna verk í Fenra

Búðu til verkið sem heldur utan um skjöl, verkefni og gæðakerfisgögn framkvæmdarinnar.

Þú þarft að vera skráð eða skráður inn og hafa heimild til að stofna verk hjá fyrirtækinu.

1. Opnaðu verk fyrirtækisins

Veldu Verk í valmyndinni og síðan Nýtt verk.

2. Skráðu grunnupplýsingar

Sláðu inn skýrt Heiti og veldu rétt Fyrirtæki. Þú getur einnig bætt við lýsingu, verknúmeri, dagsetningum og forgangi.

Glugginn Nýtt verk með gerviheiti og réttu fyrirtækiOpna mynd í fullri stærð ↗

Ef þú veist þegar hvaða möppusniðmát á að nota getur þú valið það undir Möppusniðmát (valfrjálst). Annars getur þú bætt sniðmátinu við síðar úr skjölum verksins.

3. Vistaðu verkið

Veldu Vista. Nýja verkið birtist undir Virk verk.

Nýtt gerviverk birt undir Virk verkOpna mynd í fullri stærð ↗

Næst skaltu bæta við möppunum sem halda utan um gæðakerfið.

Sjá leiðbeiningar um að nota möppusniðmát.